Ađalvalmynd

Klukkan

Leit

félagar og kunningjar

Tónlist / Gítar

Ađ stytta sér stundir..Ingvar Óli Eymundsson

Gleðilegan valentínusardag. Eða ætti ég að segja ég samhryggist? Allavega í ljósi þess að helmingur þeirra sem láta þennan dag skipta sig máli hafa engan til að eyða honum með. En auðvita hef ég enga tölfræði fyrir því, einungis ágætlega líklega tilgátu. En ekki ætla ég að eyða mínum tíma í að spotta valentínusar dag þó svo að ég sé í raun að leita mér leiða til að stytta mér stundir í andvöku minni. Það sjá vafalaust allir að klukkan er rúmlega þrjú að nóttu til og ég er að blogga!! Hver fjárinn! En þannig er það að ég veit ekki hvað skal gera. Ég er búinn að fara í gegnum allan listan og á ekkert eftir annað en að blogga.
    Ég reyndi þó einsog ég gat að gera eitthvað annað. Fyrst reyndi ég að sofna, það mistókst stórlega. Því næst fór ég á msn en þar var enginn til að svæfa mig úr leiðindum. Svo ég reyndi aftur að fara að sofa. Í það skiptið tókst mér varla að loka augunum svo ég setti einn af mínum uppáhalds geisladiskum í græurnar en einu áhrifin sem það hafði var að koma mér í stuð. Því næst ákvað ég reyna að læra en þegar ég komst að því að athyglisspanið mitt takmarkaðist aðeins við tónlistina ákvað ég að sleppa því. Það hefði ég nú frekar látið ágert því hávaðinn úr græunum var ekki vinsæll sem og annar hávaði. Eftir það snéri ég mér að "veraldarvefnum" en þar var ekkert annað en 3. leikir sem mér finnst leiðinlegir, 2. leikir sem ég er búinn að klára og 1. klám. Ég var ekki í stuði fyrir klám og leiki svo ég endaði á eina vettvangi samfélagsins sem er opinn fyrir nöldri á þessum tíma dags.
    Núna þegar bloggið er á enda er ég á barmi kvíðakasts vegna æðruleysis og vil þess vegna að blogg þetta verði á litið sem formleg kvörtun yfir því að ég sé ekki í stuði til að skoða klám.

    "Enginn nýtur þess að slæpast, sem ekk hefur mikið að gera" - Jerome K. Jerome
Þangað til næst..........

Ómálefnalegur dragsúr?Ingvar Óli Eymundsson

Daginn, daginn.. Las einhver síðustu færslu? Það gerði það allavega einn maður, sem vildi ekki láta nafn síns getið þegar hann kommentaði á það en það er allt í lagi því ég hef lumskan grun um hver sá hinn sami sé. Þetta hér er það sem hann hafði að segja:
pabbi johnbondq
25. janúar 2007 klukkan 01:44
yappidy yap, það er alveg með eindæmum hvað einn maður getur hringsnúist um eina hugsun með slíku óþrifaleysi. hvernig ferðu að þessu? krakk? heroín? sýra? hvernig sem það er allavega að þá tel ég það vera vel fyrir víst að þú ert líklegast ekki alveg heill við heilsu og samhryggist ég þér allhrapalega með það og vona ég þín vegna að þú náir þér einhverntírmann að fullu. en þangað til held ég að það sé betra að þú haldir þínum ómálefnalega dragsúr bara alveg fyrir þig (eða ef þú ert tilbúinn að læra, stytta þá færslurnar)

Ég veit ekki með ykkur kæru lesendur en þetta komment er sennilega það sem kemst því næst að vera "ómálefnalegur dragsúr". Mjög illa ígrundað komment. En ég hef gaman af einu í því eða :"það er alveg með eindæmum hvað einn maður getur hringsnúist um eina hugsun með slíku óþrifaleysi". Já það er alveg með eindæmum. Ég hef allavega ekki verið vitni að því að maður snúist í kringum hugsun í "óþrifaleysi"(sem glöggir menn fatta kanski að þýði í raun "þrifnaði"). Ég held að mitt hreinlæti komi því bara ekkert við hvernig ég hugsa, þó svo ég geti leyft mér að halda það að með orðinu "óþrifaleysi" hafi hann "pappi" eða johnbondq" átt við að óþrifnað.
Það liggur alla vega í augum uppi manneskja sem kallar sig "pabbi" eða "johnbondq" og notar orð einsog "óþrifaleysi" auk þess að kunna ekki einfaldar stafsentningarreglur, einsog "Stór stafur, lítill stafur", sé hræsnari af verstu gerð þegar hann ályktar það ég sé andlega vanhell eða á fíkniefnum.

En "johnbondq" bað mig, mjög ókurteisislega, að halda mínum "ómálefnalega dragsúr" bara alveg fyrir mig. Mitt svar við því er; "dragsúr" er ekki orð(face) en að því gefnu að þú hafir meint dragsúg (sem er þf. af orðinu dragsúgur) þá segi ég bara; Ef þér líkar ekki bloggið mitt hættu þá að lesa það og haltu bara sjálfur þínum ómálefnalega dragsúg bara alveg fyrir sjálfan þig.





Of lagt?Ingvar Óli Eymundsson

Góðan dagin!!..Kvöldið.. What ever..   Fyrir fimm mínútum síðan ákvað ég að byrja aftur að blogga(reyndar hefur það sennilega tekið korter að skrifa þetta svo það gera 20mín). Það er lítið eitt að frétta af mér annað en það að ég er byrjaður í skóla aftur, Menntaskólanum í Kópavogi. Sem er auðvita alveg frábært. En nóg um það. Áætlunin er að það verði allavega vikulegur viðburður að skrifa hér pistil svo ef ykkur líkar skrifin mín þá endilega að kíkja sem oftast. Þessari færslu hef ég helgað einni pælingu sem ég hef velt fyrir mér stöku sinnum á síðustu misserum.

Bak bið pælinguna liggur ein setning sem flestir, ef ekki allir ættu að kannast við: Að kyssa reykingarmann er eins og að sleikja öskubakka. Allir þeir sem hafa hikað andartak og hugsað um það hvað liggur bak við þessa setningu hafa að öllum líkindum velt því fyrir sér hvort eitthvað sé til í henni. Ég get auðvitað svarað því; hef ekki hugmynd, hef ekki sleikt öskubakka. En hvað með þá manneskju sem varpaði þessari vafasömu fullyrðingu fram á sjónarsviðið? Hefur hún/hann einhverjar haldbærar upplýsingar sem sýna þessar niðurstöður? Einhverjar tilraunir gerðar? Eða bara persónulega reynslu? Ég held ég geti leyft mér að halda það að svo er ekki og ef eitthvað er þá er það persónuleg reynsla. En ímyndum okkur rökræðunar vegna að það hefðu verið gerðar tilraun sem sýna ætti fram á að samansem merki væri milli þess að sleikja öskubakka og að kyssa reykingarmann. Væri hún þá eitthvað á þennan veg, að því gefnu að hún hefði staðist:

Tilgáta : Að kyssa reykingarmann er einsog að sleikja öskubakka.
Viðföng : 10 reykingarmenn/konur, 10 öskubakkar, 10 reyklausir einstaklingar.
Framkvæmd : Reyklausu einstaklingarnir kyssa reykingarmennina og sleikja öskubakkana og svara svo spurningum.
Niðurstöður : Þáttakendur greindu sterk tengsl milli þess að sleikja öskubakka og að kyssa reykingarmann.

Jæja, að því gefnu að svona hefði þetta farið fram(mjög gróflega), einsog og ég hef ímyndað mér í vangaveltum mínum, spruttu upp allmargar spurningar. Í fyrsta lagi; eru þeir, sem eru tilbúnir að sleikja öskubakka almennt, með geðheilsu og trúverðugleika sem fullnægir í niðurstöður á vísindalegri rannsókn? í öðru lagi; Skiptir máli hvaða sígarettu tegund reykingarmaðurinn reykir? Í þriðja lagi;  í hvaða röð var rútínan framkvæmd, þ.e. kysstu þeir fyrst eða sleiktu?(lykilatriði) Í fjórða lagi; Hvernig öskubakki var notaður? og áfram mætti halda í tvær þrjár síður..

Það sem skiptir máli er það að öll vitum við vel að var ekki framkvæmd slík tilraun. Því verðum við að gefa okkur það að "markaðssérfræðingurinn" sem skaut þessu inn í hug ungs fólks með það að markmiði að kollvarpa stefnumótamenningu og tísku viðhorfum þess hafi annaðhvort verið fullur af skít eða að hann hafi persónulega reynslu. Í því samhengi verðum við að hafa ofangreindar spurningar í hávegum. Því í frysta lagi; er sá sem er tilbúinn að sleikja öskubakka ekki með trúverðuga geðheilsu eða hafi verið í annarlegu ástandi og þ.a.l. ekki marktækur. Í öðru lagi; Þá skiptir það máli hvort hann hafi kysst manneskju sem reykir menthol eða manneskju sem reykir vindil. Í þriðja lagi; er það augljóst að ef sérfræðingurinn hefur þessa reynslu er það fyrir tilviljun og er ég hand viss um að hann hafi þá sleikt öskubakkan fyrst, því þú sleikir ekki öskubakka á miðju stefnumóti. Hafi hann aftur á móti sleikt öskubakkan fyrir stefnumótið þykir mér ekki skrítið afhverju kossinn bragðaðist einsog aska.Í fjórða lagi; skiptir það miklu máli hverskonar öskubakki var notaður, hafi t.d. verið notaður öskubakki sem er með innbyggða öskugeymslu myndi það framkalla taumlaus uppköst og samanburðurinn því á engan hátt marktækur.

Landsleikurinn er of spennandi til að halda áfram(og þetta er nógu andskotans langt)
Takkidítakk blæblæ

Heimsenda bloggIngvar Óli Eymundsson

Ágætu lesendur, ég hef vondar fréttir að færa; Hinn mikli dagur Guðs er í nánd. Þessu dagur ber mörg nöfn þar á meðal Harmageddon eða Heimsendir. Þetta mun verða dagurinn sem að guð refsar öllum þeim sem syndga. Þetta mun þó ekki vera í fyrsta sinn sem guð gerir það því þetta mun verða þriðji dagur guðs. Sá fyrsti var syndaflóðið, annar var dagurinn sem guð eyddi Sódómu en sá þriðji mun verða endalok alls. Allavega samkvæmt Vottum Jehóva.

Þessar upplýsingar fékk ég úr fréttabréfi Votta Jehóva ásamt mörgu öðru skemtilegu. Þessari lífsreynslu minni ætla ég að deila með ykkur. Það vill þannig til að sá sem skúrar vinnustaðinn minn er Votti Jehóva og hann sér sig knúinn til að deila alltaf með okkur því sem er að gerast meðal trúbræðra hans. Ég vil taka það fram að ég er honum mjög þakklátur fyrir það, ég er bara ekki beint sammála honum. Ef svo ólíklega vill til að hann eða einhver annar Votti les þetta er það líka í lagi vegna þess að því meira sem ég móðga þá eða rengi því heitar trúa þeir því að Hinn mikli dagur Guðs sé að nálgast. Í fréttabréfinu stóð að menn myndu spotta og hæðast að sannleikanum, þ.e þeirra sannleika. Þegar gagnrýnisraddir heyrast spotta og hæðast að Hinum mikla degi Guðs  er hann nálægari en nokkru sinni fyrr. Ég hinsvegar ætla ekki að hæðast að degi guðs. Ég ætla hinsvegar að hæðast að vitfirringu Votta Jéhóva.

Í þessu fréttabréfi stóð einnig að milljónir manna um allan heim trúðu því að dagur guðs væri að koma og að eina leiðin til þess að verja sig væri að trúa á hann og lifa eftir því, að vera sannkristinn, að vera guði verðugur svo að þegar hann kemur og eyðir þessum vonda heimi þá séu hurðir himnaríkis opnar þeim. Þessu vil ég hæðast að: Milljónir manna trúa því að heimurinn sé vondur staður og í staðinn fyrir að gera sitt besta til að bæta hann þá biðja þeir til guðs um að fá að deyja með reisn og fara til himnaríkis! All svakalega gáfulegt það, sérstaklega þegar litið er til þess að þessir miljónir manna hafa það líka sameiginlegt að halda að guð hafi skapað heiminn og allt sem í honum er og sé almáttugur í einu og öllu. Áður en ég held áfram vil ég taka það fram að mér þykir það merki um mikinn hroka að segja að guð sé ekki til þar sem að ég get ekki sýnt fram á að hann sé það ekki. Einnig vil ég taka það fram að ég hef ekkert á móti því að fólk trúi en ég er mjög svo á móti heimsku og þetta er ekkert nema heimska.

Á öðrum stað í þessu fréttabréfi kom fram afhverju menn verða að biðja til guðs og þer var sögð dæmisaga sem ég ætla að hafa eftir þeim, og hljóðar hún einhvernveginn svona: 'Ef þú vaknar um miðja nótt við það að fjölskyldumeðlimur sé veikur, hringiru þá í lækni og biður um hjálp? Ekki ef veikindin eru lítilháttar en ef aðilinn er að fá hjartaáfall eða eitthvað annað lífshættulegt þá hringiru í lækni og biður um hjálp.' Þarna hitta þeir naglann á höfuðið og ég er alveg sammál því en svo heldur greinin áfram: 'rétt einsog þegar sannkristnir menn biðja til guðs þá biðja þeir um hjálp til að halda lífi. Því djöfullinn gengur um jörðina einsog öskrandi ljón og gleypir alla þá sem hafa guð sér ekki við hlið."  Þar höfum við það. Fólk trúir á guð því þeir eru hræddir við öskrandi ljón sem gleypa. Þeir trúa á guð því þeir eru hræddir við satan.

Allt saman er þetta hræsni á guðs orð. Kristni er auðvita mesta falstrú sem til er svo samkvæmt biblíunni fara allir þeir sem trúa á hana rakleitt til helvítis. Hvað trúleysingja varðar þá eru þeir sennilega þeir einu sem fylgja orðum Jesú Krists, orðum bilbíunnar eða: Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Og kæru lesendur Vottar Jehóva hjálpa sér ekki sjálfir, nei þeir snúa sér til guðs. Við hin ráðum okkar eigin lífi og hjálpum okkur sjálf..

Er ég búinn ađ uppgvöta tilgang lífsins eđa er ég í tilvistarkreppu?Ingvar Óli Eymundsson

Hæ, ég heiti Ingvar og ég hef verið í tilvistarkeppu meira eða minna allt mitt líf og einhverra hluta vegna held ég að ég sé ekki sá eini heldur bara einn af öllum. Kanski er það vegna þess að við lifum öll í þeirri trú að það sé eitthvað meira og merkilegra við lífið en lífið sjálft án þess þó að hafa glóru um það. Kanski er það vegna þess að við höldum öll að við eigum að vera hamingjusöm. Meðan við höldum alltaf að það sé eitthvað merkilegra en lífið sjálft og getum því ekki verið hamingjusöm því þá höldum við að það sé alltaf til eitthvað meira og merkilegra en okkar hamingja. Og ef þegar við teljum okkur hamingjusöm þá hugsum við að það verði ekkert meira eða merkilegra en þetta og það er einmitt það sem fæstir eru tilbúnir að sætta sig við.

Það má vel vera að það sé satt en mín tilvistakreppa kom til út af öðrum hlutum. Fyrsta skiptið sem ég áttaði mig á að ekki væri allt sem sýndist var þegar ég var ca. 7-8ára. Ég man það vel, ég var að haga mér einsog fíflið sem ég er við matarborðið og móðir mín sagði mér að haga mér einsog maður. Ég hugsaði með mér: Hvað meinar hún hagaðu þér einsog maður? ég er maður.. ég get ekki hagað mér öðruvísi en einsog maður.. Ef ég myndi t.d. haga mér einsog önd væri ég eiginlega að haga mér einsog maður sem væri að leika önd.. ef ég er maður þá hlítur það að vera ég sem set dæmið um hvernig maður hagar sér... um leið og ég haga mér einhvernvegin er það orðin staðreynd að menn haga sér þannig'.

Auðvita skildi ég alveg hvað hún átti við með því sem hún sagði en enn þann dag í dag undrast ég hið mesta í hvert einasta skipti sem ég heyri þetta. Ekki bara vegna þess að sem maður get ég ekki hagað mér öðruvísi heldur vegna þess að maðurinn í heild sinni hagar sér ekkert sérstaklega vel. "Maður verður bara að taka því einsog maður". Maðurinn í heild er í eðli sínu vondur þó svo að einstaklingurinn sé yfirleitt ágætur, og í leiðinn akkurat öfugt. En þegar einhver segir mér að haga mér einsog maður í dag get ég ekki annað en hugsað um hvað maðurinn gerir á degi hverjum.. Hatar, nauðgar, drepur, stelur, eyðileggur, meiðir, kemur illa fram... Elskar, læknar, gefur, hjálpar, er kurteis... Hvað er eiginlega verið að biðja mann um? Þetta er það sem kom mér í fyrstu tilveistakreppuna mína.. þ.e. ef ég er maður og maðurinn gerir allt þetta hvað af þessu á ég þá að gera ef ég vill haga mér einsog maður?

Í fyrstu mætti halda að svarið væri augljóst en svo er ekki. Því maðurinn er eina dýrið sem virkilega hatar, maðurinn hatar sjálfan sig og næsta mann við hliðina á. Maðurinn er sennilega líka eina dýrið sem að drepur, meiðir, og pyntar sitt eigið kyn til skemtunar. En öll dýr elska án þess að hata.. Er hatur þá ekki sanna eðli mannsins og tilvistarkreppan skapast þegar það er þrýst á mann úr öllum áttum að elska náungan.. Ég veit ekki með alla aðra en sjálfan mig en ég vona innilega ekki.. En þegar upp er staðið skiptir það varla máli hvað maður gerir.. Því eftir allt saman er maður í bara mannlegur... eða hvað?.. Er kanski eitthvað meira og merkilegra? Er þetta merkilega kanski ekkert annað en tilvistarkreppan og tilgangur lífsins er að komast í gegnum hana?

Ég veit það ekki en ég held að ég geri mitt allra besta við að haga mér ekki einsog maður.








VARÚĐ!! EKKI FYRIR FÓLK MEĐ HÚMOR!!Ingvar Óli Eymundsson

    Ég ætla að byrja á því að biðjast afsökunar á því sem ég er að fara að skrifa, því það er klisja sem ég hef lesið allavega þúsund sinnum á bloggsíðum á jafnmörgum heimasíðum...

    Vá, það er orðið langt síðan maður hefur bloggað.. Næstum því of langt! Ég verð eiginlega að biðja alla þrjá aðdáendur mína afsökunar á þessari hegðun minni. Afsakið.

Áfram Ísland! Magni með flest atkvæði! Eða ísland öllu heldur! Ég veit ekki hvað það er en alltaf þegar ég sé Magna í Rockstar brýst Íslendingurinn í mér út og ég verð einlægur aðdáandi. Alveg einsog þátturinn sé heimsmeistarakeppni í rokki! Mér þykir leitt að segja það en mér finnst Magni ekki vera sá besti þarna en ég kýs hann samt! Einn fyrir alla allir fyrir einn. Við erum svo fáir, við Íslendingarnir, að við verðum að standa saman í einu og öllu, allavega þegar kemur að því að sanna okkur sem rokkara! Þið lesendur góðir getið talið ykkur heppna akkurat núna.. meðan þið eruð að lesa... aha.. Ég var nefnilega búinn að skrifa heila bók hérna um það að raunveruleikinn væri tálsýn þegar ég áttaði mig á því að ég var farinn að vera ósammála sjálfum mér og strokaði allt saman út.. What a waste og time that was.. Í þessari bók sýndi ég meira að segja fram á að tímin væri í raun ekki til á mjög röklegan hátt.. Svo það var kanski ekki tímaeyðsla eftir allt saman.. Það gerðist ekki einu sinni!!

EVS!!

Ég held ég muni ţađ...Ingvar Óli Eymundsson

Fyrir átta dögum síðan kom ég heim frá Vestmanneyjum og ég get svo svarið það að ég er enn pínu þunnur. Þessiu ferð var hvort eð er alveg örugglega þess virði að vera þunnur í rúma viku.. Nei, afsakið, það er skilyrði að vera þunnur í að minnstakosti viku eftir Þjóðhátíð! Og að hugsa sér.. Það er fullt af fólki þarna úti sem hefur aldrei farið og upplifað brennivín og lunda, rigningu og gleði saman í einni kássu. Sjálfur lenti ég í því að tjaldið mitt eyðilagðist og fauk, ég ofkældist og varð veikur, og takið eftir því að það þurfti að flytja mig með sjúkrabíl á sjúkra hús því ég var sjúkur, en samt hef ég aldrey skemmt mér jafn vel...
    Það dæmir hver fyrir sig en ég veit að Þjóðhátíð í eyjum er besta skemmtun sem ísland hefur uppá að bjóða því ekkert jafnast á við þjóðhátíð!!

    Það tekur heila eilífð að útlista henni í smáatriðum en það er nokkuð ljóst að Bacon var sterka og þöggla týpan, Teddi var ekki þessi týpa, Manni átti besta brandarann, Óli veiddi stærsta b-b-b-blöðruselinn í dalnum og trademarkið mitt var skítugur sjógalli, ódýr bjór og Húsavíkur-Jógurt-Wiskí-Fishermannsfriend

Ps :  Ég veit ekki hvort þið heyrðuð mig telja en ég er kominn yfir þúsund


Góđur draumur mađur..Ingvar Óli Eymundsson

Eyjó!!

Hæ allir þrír sem að heimsóttu síðuna mína í dag, það gleður mig mikið að einhver skuli hafa svona mikla trú á mér í blogginu og einmitt þess vegna er ég að blogga.. eða hvað?... Ég hef frá heilmiklu að segja, á meðan Gilsenigger þorir en aðrir þegja. Í dag mun vera 28. júlí, ég veit btw alltaf hvaða dagsetning er því að ég skrifa hana á hverjum degi ca. 100 í vinnunni!, en hvað um það... 28. það þýðir að það eru aðeins sex dagar í eyjar og krakkarnir eru víst vitlausir í það. Það hefur þó varla farið fram hjá mörgum að það er jú að koma verzlunamannahelgi... svo hvað um það...

Í augnanlikinu sit ég, væntanlega, við tölfuna með kaffibleyttan rudda í trantinum að hugleiða draum sem ég fékk áðan í fegurðarblundinum mínum, sem bara reyndar engan árangur enda ekki við öðru að búast.. eins fallegur og maður er... Þessi draumur var langur og eiginlega svolítið leiðinlegur en samt var eitt mjög heillandi við hann.. Mér hefur dreymt part af honum áður! Ekki það að mér finnist það eitthvað dulúðlegt heldur finnst mér það afar einkennilegt því þetta var eiginlega frekar glatað.. Í draumnum þá er ég með einhverju fólki sem ég get ekki borið kensl á vakandi, þó svo að ég þekki þau í draumnum, og við erum að labba út á land, á Laugar held ég. En í draumnum þurfum við að komast yfir fjall sem er svolítið einsog gaffal í laginu, brött brekka lengst upp og svo niður, en aðeins, hálfa leið.. uppaftur.. niður hálfaleið svo upp og svo niður langa geðveikt bratta brekku... Það var pínu vandamál í fyrstu að komast upp brekkuna því hún var svo brött að maður þurfti hreinlega að klifra hana og þá hjálpaði ekki að hún var ísi lögð.. Loksins þegar maður komst svo upp þá gat maður rent sér restina! Það var að vísu fjör fyrir utan það að í báðum draumunum datt ég útaf fjallinu og vaknaði í kjölfarið.. WHAT THE FUCK! Ég er alveg gjörsamlega gáttaður.. NEI hneikslaður á þessari hegðun sem heilinn minn tekur sér fyrir þegar ég sit ekki við stjórnborðið.. Nákvæmlega svona hluti dreymir mig alltaf.. Ekki endilega ísgaffalsbrekku en eitthvað álíka fáránlegt... Er það eðlilegt eða þarf ég að fara borða sardínur??

Talandi um að þurfa að borða sardínur.. Móðir mín, eins frábær og hún er, heldur því fram að ég borði ekki nóg af sardínum!!! Æji hún er alveg einstök!! Ég man ekki einu sinni eftir því að hafa nokkurn tíma á æfini smakkað sardínu og þess vegna skil ég ekki hvernig ég get ekki ekki borðað nóg af þeim.. Sérstaklega með það í huga að hún komst að þessari niðurstöðu því hún telur sig vita að ég þurfi að borða meira kalk!! OG HÚN SEGIR MÉR AÐ BORÐA SARDÍNUR!! Af hverju ekki ost.... Afsakaðu mig mamma en þú átt eftir að drepa mig úr hlátri einhvern tíma.. Ef þú, lesandi kær, þekkir mömmu þá veistu hvað ég á við...

    En fyrst þetta er á enda þá finnst mér vel við hæfi að enda þetta blogg með  tilvitnun í hetjuna :

        " You're just a woman with a small brain.. It's true their brains are one third of the size ours is" ''Ron Burgandy''

Bæjó



Kúl mađurIngvar Óli Eymundsson

Halló!!! Hæ!!
Vá hvað það er ótrúlega langt síðan ég kom inná þessa frábæru og fallegu síðu sem er svo ótrúlega heppin að heita í höfuðið á mér! Það hefur margt gengið á síðan síðast, eiginlega of margt til þess að ég hafi tíma og getu til að útlista hér en í stuttu máli er bara sumar og sumar er ekki tíminn til að hanga á netinu. Ef það er þá hægt að kalla þetta sumar, þetta hefur verið heldur slapt hingað til. Engu að síður hef ég ekki verið í skapi til þess að blogga. Einu skiptin sem ég er nógu lengi heima til þess að komast í það skap sem þarf til að blogga er þegar ég er þunnur, einsog t.d. núna. Þynkublogg er, í mínu tilfelli, of uppfullt af einkahúmor sem mér finnst ekki einu sinni fyndinn svo oftar en ekki læt ég það sleppa frá mér að blogga.

    Sumarið hefur þó verið ágætt, heimsmeistara mótið í fótbolta hefur séð til þess. Mínir menn í Argentínu komust reyndar ekki alla leið einsog ég hélt að þeir myndu gera en ég var þó nokkuð sáttur með úrslitin þegar upp var staðið. Svo hefur auðvita verið djammað nóg í sumar! Ef hægt væri myndi ég segja að ég væri næstum búinn að djamma of mikið. Það vita þó allir að það er ekki hægt. Það eru jú aðeins tvær reglur í lífinu 1. það er aldrei hægt að drekka of mikið 2. annað hvort legguru í einelti eða ert lagður í einelti.. Ok, það er kanski ekkert til í reglu 2, ég er t.d. ekki lagður í einelti þó svo að ég sé ekki að leggja neinn í einelti en what ever..

    Ég er viss um að ég eigi ekki eftir að nenna að blogga neitt á næstunni og þess vegna vill ég tala aðeins um framtíðina. Eyjar er framtíðin, björt og brosandi. Allavega framtíð mín í allri sinni dýrð glæst og glansandi. Ásamt fríðu föruneyti fer ég með Herra Eyjólfi kl: 20:00:00 á fimmtudeginum og kem heim á þriðjudags morguninn, að ég held.

    Þetta blogg er nú á enda. Ég reyndi mitt besta til að halda þynkuruglinu í skefjum.. Sem skilur eftir sig að þessi færsla er ótrúlega húmorslaus og ópersónuleg... Maður er nátúrulega bara með tvær hendur og getur ekki gert endalaust marga hluti á sama tíma... Ef ég kemst í það að blogga á næstunni gæti verið að ég segi frá mirkum leyndarmálum næturlífsins en þangað til...........   Bæjó!! Blesss blesssssszzzzzzzzzzzzz

Slappleiki!Ingvar Óli Eymundsson

Það er eflaust eftirtektar vert að þegar þetta er skrifað er föstudagskvöld en það vill þannig til að ég er lasinn, sem er andskotans vesen. Það er frábært og mjög svo glaðlegt veður sem hefur þau áhrif á mig að mig þyrstir í bjór. Þar að auki er auðvita fyrsta helgi mánaðarins,hvítasunnuhelgin, og því hafa margir ærna ástæðu til að detta í það, allir nema ég. Ég hef hinsvegar fullt af ástæðum til þess að gera það ekki ; í fyrsta lagi þá er ég veikur, í öðrulagi er ég á sýklalyfjum, í þriðja lagi fékk ég ekki útborgað og í fjórða lagi væri ég að fara að vinna á morgun ef ég væri frískur, þó svo ekki sé nefnt hversu óhollt það sé að drekka enda hefur það aldrei verið fyrirstaða. Það kemur út í því að ég get ekkert gert nema hangið í tölvunni, lesið eða horft á sjónvarp í minum vökustundum. Ég er nú þegar búinn að lesa nokkur hundruð blaðsíður auk þess að eyða talsverðum tíma í tölvunni. Ég ákvað því að skoða hvað væri í sjónvarpinu en komst að því, mér til mikilla vonbrigða, að þar er ekkert áhugavert nema raunveruleika þátturinn um nördana og sætu stelpurnar. Það er frábær þáttur, vægt til orða tekið. Það sem mér finnst best við hann er að stelpurnar eru miklu meira heimskar en þeir nördar. Þetta eru alveg örugglega heimskustu stelpur sem ég hef nokkurn tíma augum litið.

Mér er farið að verða illt í augunum af því að glápa á tölvunna svo ég kveð að sinni.
Síđa 1 af 3

Auglýsing

Brandari..?

Jói : Kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó?
Andri : Ertu ađ grínast? Jahá hvađ ţađ kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó!!
Jói : Líka í pissuskálar?
Andri : Ébsí pepsi
Jói : Ertu hand viss?
Andri : Hland piss

Teljari

Innskráningar kubbur