Hér bloggar Ingvar
Heimsenda bloggIngvar Óli Eymundsson
Ágætu lesendur, ég hef vondar fréttir að færa; Hinn mikli dagur Guðs er í nánd. Þessu dagur ber mörg nöfn þar á meðal Harmageddon eða Heimsendir. Þetta mun verða dagurinn sem að guð refsar öllum þeim sem syndga. Þetta mun þó ekki vera í fyrsta sinn sem guð gerir það því þetta mun verða þriðji dagur guðs. Sá fyrsti var syndaflóðið, annar var dagurinn sem guð eyddi Sódómu en sá þriðji mun verða endalok alls. Allavega samkvæmt Vottum Jehóva.Þessar upplýsingar fékk ég úr fréttabréfi Votta Jehóva ásamt mörgu öðru skemtilegu. Þessari lífsreynslu minni ætla ég að deila með ykkur. Það vill þannig til að sá sem skúrar vinnustaðinn minn er Votti Jehóva og hann sér sig knúinn til að deila alltaf með okkur því sem er að gerast meðal trúbræðra hans. Ég vil taka það fram að ég er honum mjög þakklátur fyrir það, ég er bara ekki beint sammála honum. Ef svo ólíklega vill til að hann eða einhver annar Votti les þetta er það líka í lagi vegna þess að því meira sem ég móðga þá eða rengi því heitar trúa þeir því að Hinn mikli dagur Guðs sé að nálgast. Í fréttabréfinu stóð að menn myndu spotta og hæðast að sannleikanum, þ.e þeirra sannleika. Þegar gagnrýnisraddir heyrast spotta og hæðast að Hinum mikla degi Guðs er hann nálægari en nokkru sinni fyrr. Ég hinsvegar ætla ekki að hæðast að degi guðs. Ég ætla hinsvegar að hæðast að vitfirringu Votta Jéhóva.
Í þessu fréttabréfi stóð einnig að milljónir manna um allan heim trúðu því að dagur guðs væri að koma og að eina leiðin til þess að verja sig væri að trúa á hann og lifa eftir því, að vera sannkristinn, að vera guði verðugur svo að þegar hann kemur og eyðir þessum vonda heimi þá séu hurðir himnaríkis opnar þeim. Þessu vil ég hæðast að: Milljónir manna trúa því að heimurinn sé vondur staður og í staðinn fyrir að gera sitt besta til að bæta hann þá biðja þeir til guðs um að fá að deyja með reisn og fara til himnaríkis! All svakalega gáfulegt það, sérstaklega þegar litið er til þess að þessir miljónir manna hafa það líka sameiginlegt að halda að guð hafi skapað heiminn og allt sem í honum er og sé almáttugur í einu og öllu. Áður en ég held áfram vil ég taka það fram að mér þykir það merki um mikinn hroka að segja að guð sé ekki til þar sem að ég get ekki sýnt fram á að hann sé það ekki. Einnig vil ég taka það fram að ég hef ekkert á móti því að fólk trúi en ég er mjög svo á móti heimsku og þetta er ekkert nema heimska.
Á öðrum stað í þessu fréttabréfi kom fram afhverju menn verða að biðja til guðs og þer var sögð dæmisaga sem ég ætla að hafa eftir þeim, og hljóðar hún einhvernveginn svona: 'Ef þú vaknar um miðja nótt við það að fjölskyldumeðlimur sé veikur, hringiru þá í lækni og biður um hjálp? Ekki ef veikindin eru lítilháttar en ef aðilinn er að fá hjartaáfall eða eitthvað annað lífshættulegt þá hringiru í lækni og biður um hjálp.' Þarna hitta þeir naglann á höfuðið og ég er alveg sammál því en svo heldur greinin áfram: 'rétt einsog þegar sannkristnir menn biðja til guðs þá biðja þeir um hjálp til að halda lífi. Því djöfullinn gengur um jörðina einsog öskrandi ljón og gleypir alla þá sem hafa guð sér ekki við hlið." Þar höfum við það. Fólk trúir á guð því þeir eru hræddir við öskrandi ljón sem gleypa. Þeir trúa á guð því þeir eru hræddir við satan.
Allt saman er þetta hræsni á guðs orð. Kristni er auðvita mesta falstrú sem til er svo samkvæmt biblíunni fara allir þeir sem trúa á hana rakleitt til helvítis. Hvað trúleysingja varðar þá eru þeir sennilega þeir einu sem fylgja orðum Jesú Krists, orðum bilbíunnar eða: Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir. Og kæru lesendur Vottar Jehóva hjálpa sér ekki sjálfir, nei þeir snúa sér til guðs. Við hin ráðum okkar eigin lífi og hjálpum okkur sjálf..