Hér bloggar Ingvar
Of lagt?Ingvar Óli Eymundsson
Góðan dagin!!..Kvöldið.. What ever.. Fyrir fimm mínútum síðan ákvað ég að byrja aftur að blogga(reyndar hefur það sennilega tekið korter að skrifa þetta svo það gera 20mín). Það er lítið eitt að frétta af mér annað en það að ég er byrjaður í skóla aftur, Menntaskólanum í Kópavogi. Sem er auðvita alveg frábært. En nóg um það. Áætlunin er að það verði allavega vikulegur viðburður að skrifa hér pistil svo ef ykkur líkar skrifin mín þá endilega að kíkja sem oftast. Þessari færslu hef ég helgað einni pælingu sem ég hef velt fyrir mér stöku sinnum á síðustu misserum.Bak bið pælinguna liggur ein setning sem flestir, ef ekki allir ættu að kannast við: Að kyssa reykingarmann er eins og að sleikja öskubakka. Allir þeir sem hafa hikað andartak og hugsað um það hvað liggur bak við þessa setningu hafa að öllum líkindum velt því fyrir sér hvort eitthvað sé til í henni. Ég get auðvitað svarað því; hef ekki hugmynd, hef ekki sleikt öskubakka. En hvað með þá manneskju sem varpaði þessari vafasömu fullyrðingu fram á sjónarsviðið? Hefur hún/hann einhverjar haldbærar upplýsingar sem sýna þessar niðurstöður? Einhverjar tilraunir gerðar? Eða bara persónulega reynslu? Ég held ég geti leyft mér að halda það að svo er ekki og ef eitthvað er þá er það persónuleg reynsla. En ímyndum okkur rökræðunar vegna að það hefðu verið gerðar tilraun sem sýna ætti fram á að samansem merki væri milli þess að sleikja öskubakka og að kyssa reykingarmann. Væri hún þá eitthvað á þennan veg, að því gefnu að hún hefði staðist:
Tilgáta : Að kyssa reykingarmann er einsog að sleikja öskubakka.
Viðföng : 10 reykingarmenn/konur, 10 öskubakkar, 10 reyklausir einstaklingar.
Framkvæmd : Reyklausu einstaklingarnir kyssa reykingarmennina og sleikja öskubakkana og svara svo spurningum.
Niðurstöður : Þáttakendur greindu sterk tengsl milli þess að sleikja öskubakka og að kyssa reykingarmann.
Jæja, að því gefnu að svona hefði þetta farið fram(mjög gróflega), einsog og ég hef ímyndað mér í vangaveltum mínum, spruttu upp allmargar spurningar. Í fyrsta lagi; eru þeir, sem eru tilbúnir að sleikja öskubakka almennt, með geðheilsu og trúverðugleika sem fullnægir í niðurstöður á vísindalegri rannsókn? í öðru lagi; Skiptir máli hvaða sígarettu tegund reykingarmaðurinn reykir? Í þriðja lagi; í hvaða röð var rútínan framkvæmd, þ.e. kysstu þeir fyrst eða sleiktu?(lykilatriði) Í fjórða lagi; Hvernig öskubakki var notaður? og áfram mætti halda í tvær þrjár síður..
Það sem skiptir máli er það að öll vitum við vel að var ekki framkvæmd slík tilraun. Því verðum við að gefa okkur það að "markaðssérfræðingurinn" sem skaut þessu inn í hug ungs fólks með það að markmiði að kollvarpa stefnumótamenningu og tísku viðhorfum þess hafi annaðhvort verið fullur af skít eða að hann hafi persónulega reynslu. Í því samhengi verðum við að hafa ofangreindar spurningar í hávegum. Því í frysta lagi; er sá sem er tilbúinn að sleikja öskubakka ekki með trúverðuga geðheilsu eða hafi verið í annarlegu ástandi og þ.a.l. ekki marktækur. Í öðru lagi; Þá skiptir það máli hvort hann hafi kysst manneskju sem reykir menthol eða manneskju sem reykir vindil. Í þriðja lagi; er það augljóst að ef sérfræðingurinn hefur þessa reynslu er það fyrir tilviljun og er ég hand viss um að hann hafi þá sleikt öskubakkan fyrst, því þú sleikir ekki öskubakka á miðju stefnumóti. Hafi hann aftur á móti sleikt öskubakkan fyrir stefnumótið þykir mér ekki skrítið afhverju kossinn bragðaðist einsog aska.Í fjórða lagi; skiptir það miklu máli hverskonar öskubakki var notaður, hafi t.d. verið notaður öskubakki sem er með innbyggða öskugeymslu myndi það framkalla taumlaus uppköst og samanburðurinn því á engan hátt marktækur.
Landsleikurinn er of spennandi til að halda áfram(og þetta er nógu andskotans langt)
Takkidítakk blæblæ
Athugasemdir
1
Guðrún Hildur skrifar:
haha .. þú ert fagmaður kæri bróðir.. og ég ætla að nota þig í verkefnið mitt í félagsfræði.. stend alveg á gati um hvað ég eigi að nota og þú ert stútfullur af hugmyndum.. hmm og þvælu reyndar líka.. enn það leynist samt alltaf hellings vit í þessu hjá þér.. sakna þín strákur:*
23. janúar 2007 klukkan 05:30
2
pabbi skrifar:
yappidy yap, það er alveg með eindæmum hvað einn maður getur hringsnúist um eina hugsun með slíku óþrifaleysi. hvernig ferðu að þessu? krakk? heroín? sýra? hvernig sem það er allavega að þá tel ég það vera vel fyrir víst að þú ert líklegast ekki alveg heill við heilsu og samhryggist ég þér allhrapalega með það og vona ég þín vegna að þú náir þér einhverntírmann að fullu. en þangað til held ég að það sé betra að þú haldir þínum ómálefnalega dragsúr bara alveg fyrir þig (eða ef þú ert tilbúinn að læra, stytta þá færslurnar)
25. janúar 2007 klukkan 07:44