Hér bloggar Ingvar
Ađ stytta sér stundir..Ingvar Óli Eymundsson
Gleðilegan valentínusardag. Eða ætti ég að segja ég samhryggist? Allavega í ljósi þess að helmingur þeirra sem láta þennan dag skipta sig máli hafa engan til að eyða honum með. En auðvita hef ég enga tölfræði fyrir því, einungis ágætlega líklega tilgátu. En ekki ætla ég að eyða mínum tíma í að spotta valentínusar dag þó svo að ég sé í raun að leita mér leiða til að stytta mér stundir í andvöku minni. Það sjá vafalaust allir að klukkan er rúmlega þrjú að nóttu til og ég er að blogga!! Hver fjárinn! En þannig er það að ég veit ekki hvað skal gera. Ég er búinn að fara í gegnum allan listan og á ekkert eftir annað en að blogga.Ég reyndi þó einsog ég gat að gera eitthvað annað. Fyrst reyndi ég að sofna, það mistókst stórlega. Því næst fór ég á msn en þar var enginn til að svæfa mig úr leiðindum. Svo ég reyndi aftur að fara að sofa. Í það skiptið tókst mér varla að loka augunum svo ég setti einn af mínum uppáhalds geisladiskum í græurnar en einu áhrifin sem það hafði var að koma mér í stuð. Því næst ákvað ég reyna að læra en þegar ég komst að því að athyglisspanið mitt takmarkaðist aðeins við tónlistina ákvað ég að sleppa því. Það hefði ég nú frekar látið ágert því hávaðinn úr græunum var ekki vinsæll sem og annar hávaði. Eftir það snéri ég mér að "veraldarvefnum" en þar var ekkert annað en 3. leikir sem mér finnst leiðinlegir, 2. leikir sem ég er búinn að klára og 1. klám. Ég var ekki í stuði fyrir klám og leiki svo ég endaði á eina vettvangi samfélagsins sem er opinn fyrir nöldri á þessum tíma dags.
Núna þegar bloggið er á enda er ég á barmi kvíðakasts vegna æðruleysis og vil þess vegna að blogg þetta verði á litið sem formleg kvörtun yfir því að ég sé ekki í stuði til að skoða klám.
"Enginn nýtur þess að slæpast, sem ekk hefur mikið að gera" - Jerome K. Jerome
Þangað til næst..........
Athugasemdir
2
Ingvarinn skrifar:
Vel sagt! langt síðan ég heyrði einhvern quote-a Skytturnar, heimspekinga littla mannsins..
23. febrúar 2007 klukkan 02:45
kallinn kveður sem skildi. peace.
smári.