Hér bloggar Ingvar
Slappleiki!Ingvar Óli Eymundsson
Það er eflaust eftirtektar vert að þegar þetta er skrifað er föstudagskvöld en það vill þannig til að ég er lasinn, sem er andskotans vesen. Það er frábært og mjög svo glaðlegt veður sem hefur þau áhrif á mig að mig þyrstir í bjór. Þar að auki er auðvita fyrsta helgi mánaðarins,hvítasunnuhelgin, og því hafa margir ærna ástæðu til að detta í það, allir nema ég. Ég hef hinsvegar fullt af ástæðum til þess að gera það ekki ; í fyrsta lagi þá er ég veikur, í öðrulagi er ég á sýklalyfjum, í þriðja lagi fékk ég ekki útborgað og í fjórða lagi væri ég að fara að vinna á morgun ef ég væri frískur, þó svo ekki sé nefnt hversu óhollt það sé að drekka enda hefur það aldrei verið fyrirstaða. Það kemur út í því að ég get ekkert gert nema hangið í tölvunni, lesið eða horft á sjónvarp í minum vökustundum. Ég er nú þegar búinn að lesa nokkur hundruð blaðsíður auk þess að eyða talsverðum tíma í tölvunni. Ég ákvað því að skoða hvað væri í sjónvarpinu en komst að því, mér til mikilla vonbrigða, að þar er ekkert áhugavert nema raunveruleika þátturinn um nördana og sætu stelpurnar. Það er frábær þáttur, vægt til orða tekið. Það sem mér finnst best við hann er að stelpurnar eru miklu meira heimskar en þeir nördar. Þetta eru alveg örugglega heimskustu stelpur sem ég hef nokkurn tíma augum litið.Mér er farið að verða illt í augunum af því að glápa á tölvunna svo ég kveð að sinni.
Athugasemdir
1
siggi fannar skrifar:
íha... Ingvar lifir... afhverju í fudganum komstu ekki norður í partí til mín... (ég veit það stendur í blogginu, it's a rhetorical question)
20. júní 2006 klukkan 01:42