Aðalvalmynd

Klukkan

Leit

félagar og kunningjar

Tónlist / Gítar

Ég held ég muni það...Ingvar Óli Eymundsson

Fyrir átta dögum síðan kom ég heim frá Vestmanneyjum og ég get svo svarið það að ég er enn pínu þunnur. Þessiu ferð var hvort eð er alveg örugglega þess virði að vera þunnur í rúma viku.. Nei, afsakið, það er skilyrði að vera þunnur í að minnstakosti viku eftir Þjóðhátíð! Og að hugsa sér.. Það er fullt af fólki þarna úti sem hefur aldrei farið og upplifað brennivín og lunda, rigningu og gleði saman í einni kássu. Sjálfur lenti ég í því að tjaldið mitt eyðilagðist og fauk, ég ofkældist og varð veikur, og takið eftir því að það þurfti að flytja mig með sjúkrabíl á sjúkra hús því ég var sjúkur, en samt hef ég aldrey skemmt mér jafn vel...
    Það dæmir hver fyrir sig en ég veit að Þjóðhátíð í eyjum er besta skemmtun sem ísland hefur uppá að bjóða því ekkert jafnast á við þjóðhátíð!!

    Það tekur heila eilífð að útlista henni í smáatriðum en það er nokkuð ljóst að Bacon var sterka og þöggla týpan, Teddi var ekki þessi týpa, Manni átti besta brandarann, Óli veiddi stærsta b-b-b-blöðruselinn í dalnum og trademarkið mitt var skítugur sjógalli, ódýr bjór og Húsavíkur-Jógurt-Wiskí-Fishermannsfriend

Ps :  Ég veit ekki hvort þið heyrðuð mig telja en ég er kominn yfir þúsund


Skrifa athugasemd

Auglýsing

Brandari..?

Jói : Kostar að fara á klóstið í Mónakó?
Andri : Ertu að grínast? Jahá hvað það kostar að fara á klóstið í Mónakó!!
Jói : Líka í pissuskálar?
Andri : Ébsí pepsi
Jói : Ertu hand viss?
Andri : Hland piss

Teljari

Innskráningar kubbur