Ađalvalmynd

Klukkan

Leit

félagar og kunningjar

Tónlist / Gítar

Er ég búinn ađ uppgvöta tilgang lífsins eđa er ég í tilvistarkreppu?Ingvar Óli Eymundsson

Hæ, ég heiti Ingvar og ég hef verið í tilvistarkeppu meira eða minna allt mitt líf og einhverra hluta vegna held ég að ég sé ekki sá eini heldur bara einn af öllum. Kanski er það vegna þess að við lifum öll í þeirri trú að það sé eitthvað meira og merkilegra við lífið en lífið sjálft án þess þó að hafa glóru um það. Kanski er það vegna þess að við höldum öll að við eigum að vera hamingjusöm. Meðan við höldum alltaf að það sé eitthvað merkilegra en lífið sjálft og getum því ekki verið hamingjusöm því þá höldum við að það sé alltaf til eitthvað meira og merkilegra en okkar hamingja. Og ef þegar við teljum okkur hamingjusöm þá hugsum við að það verði ekkert meira eða merkilegra en þetta og það er einmitt það sem fæstir eru tilbúnir að sætta sig við.

Það má vel vera að það sé satt en mín tilvistakreppa kom til út af öðrum hlutum. Fyrsta skiptið sem ég áttaði mig á að ekki væri allt sem sýndist var þegar ég var ca. 7-8ára. Ég man það vel, ég var að haga mér einsog fíflið sem ég er við matarborðið og móðir mín sagði mér að haga mér einsog maður. Ég hugsaði með mér: Hvað meinar hún hagaðu þér einsog maður? ég er maður.. ég get ekki hagað mér öðruvísi en einsog maður.. Ef ég myndi t.d. haga mér einsog önd væri ég eiginlega að haga mér einsog maður sem væri að leika önd.. ef ég er maður þá hlítur það að vera ég sem set dæmið um hvernig maður hagar sér... um leið og ég haga mér einhvernvegin er það orðin staðreynd að menn haga sér þannig'.

Auðvita skildi ég alveg hvað hún átti við með því sem hún sagði en enn þann dag í dag undrast ég hið mesta í hvert einasta skipti sem ég heyri þetta. Ekki bara vegna þess að sem maður get ég ekki hagað mér öðruvísi heldur vegna þess að maðurinn í heild sinni hagar sér ekkert sérstaklega vel. "Maður verður bara að taka því einsog maður". Maðurinn í heild er í eðli sínu vondur þó svo að einstaklingurinn sé yfirleitt ágætur, og í leiðinn akkurat öfugt. En þegar einhver segir mér að haga mér einsog maður í dag get ég ekki annað en hugsað um hvað maðurinn gerir á degi hverjum.. Hatar, nauðgar, drepur, stelur, eyðileggur, meiðir, kemur illa fram... Elskar, læknar, gefur, hjálpar, er kurteis... Hvað er eiginlega verið að biðja mann um? Þetta er það sem kom mér í fyrstu tilveistakreppuna mína.. þ.e. ef ég er maður og maðurinn gerir allt þetta hvað af þessu á ég þá að gera ef ég vill haga mér einsog maður?

Í fyrstu mætti halda að svarið væri augljóst en svo er ekki. Því maðurinn er eina dýrið sem virkilega hatar, maðurinn hatar sjálfan sig og næsta mann við hliðina á. Maðurinn er sennilega líka eina dýrið sem að drepur, meiðir, og pyntar sitt eigið kyn til skemtunar. En öll dýr elska án þess að hata.. Er hatur þá ekki sanna eðli mannsins og tilvistarkreppan skapast þegar það er þrýst á mann úr öllum áttum að elska náungan.. Ég veit ekki með alla aðra en sjálfan mig en ég vona innilega ekki.. En þegar upp er staðið skiptir það varla máli hvað maður gerir.. Því eftir allt saman er maður í bara mannlegur... eða hvað?.. Er kanski eitthvað meira og merkilegra? Er þetta merkilega kanski ekkert annað en tilvistarkreppan og tilgangur lífsins er að komast í gegnum hana?

Ég veit það ekki en ég held að ég geri mitt allra besta við að haga mér ekki einsog maður.








Kúl mađurIngvar Óli Eymundsson

Halló!!! Hæ!!
Vá hvað það er ótrúlega langt síðan ég kom inná þessa frábæru og fallegu síðu sem er svo ótrúlega heppin að heita í höfuðið á mér! Það hefur margt gengið á síðan síðast, eiginlega of margt til þess að ég hafi tíma og getu til að útlista hér en í stuttu máli er bara sumar og sumar er ekki tíminn til að hanga á netinu. Ef það er þá hægt að kalla þetta sumar, þetta hefur verið heldur slapt hingað til. Engu að síður hef ég ekki verið í skapi til þess að blogga. Einu skiptin sem ég er nógu lengi heima til þess að komast í það skap sem þarf til að blogga er þegar ég er þunnur, einsog t.d. núna. Þynkublogg er, í mínu tilfelli, of uppfullt af einkahúmor sem mér finnst ekki einu sinni fyndinn svo oftar en ekki læt ég það sleppa frá mér að blogga.

    Sumarið hefur þó verið ágætt, heimsmeistara mótið í fótbolta hefur séð til þess. Mínir menn í Argentínu komust reyndar ekki alla leið einsog ég hélt að þeir myndu gera en ég var þó nokkuð sáttur með úrslitin þegar upp var staðið. Svo hefur auðvita verið djammað nóg í sumar! Ef hægt væri myndi ég segja að ég væri næstum búinn að djamma of mikið. Það vita þó allir að það er ekki hægt. Það eru jú aðeins tvær reglur í lífinu 1. það er aldrei hægt að drekka of mikið 2. annað hvort legguru í einelti eða ert lagður í einelti.. Ok, það er kanski ekkert til í reglu 2, ég er t.d. ekki lagður í einelti þó svo að ég sé ekki að leggja neinn í einelti en what ever..

    Ég er viss um að ég eigi ekki eftir að nenna að blogga neitt á næstunni og þess vegna vill ég tala aðeins um framtíðina. Eyjar er framtíðin, björt og brosandi. Allavega framtíð mín í allri sinni dýrð glæst og glansandi. Ásamt fríðu föruneyti fer ég með Herra Eyjólfi kl: 20:00:00 á fimmtudeginum og kem heim á þriðjudags morguninn, að ég held.

    Þetta blogg er nú á enda. Ég reyndi mitt besta til að halda þynkuruglinu í skefjum.. Sem skilur eftir sig að þessi færsla er ótrúlega húmorslaus og ópersónuleg... Maður er nátúrulega bara með tvær hendur og getur ekki gert endalaust marga hluti á sama tíma... Ef ég kemst í það að blogga á næstunni gæti verið að ég segi frá mirkum leyndarmálum næturlífsins en þangað til...........   Bæjó!! Blesss blesssssszzzzzzzzzzzzz

Reykingar!Ingvar Óli Eymundsson

Það er gaman að segja frá því að ég er ennþá reyklaus og hef ætlað mér að vera þannig það sem að eftir er. Frá því ég hætti að reykja er ég farinn að sjá skuggahliðar reykinganna í miklu ríkari mæli en áður. Ég er núna fyrst að átta mig á alvarleika reykinga og langar að deila því með heiminum.

Það vita auðvita all flestir að reykingar valda krabbameini og kransæðastíflum auk annara óteljandi sjúkdóma sem leiða til dauða. Það virðist þó hafa lítil áhrif á reykingarmenn. Sennilega vegna fíknarinnar sem heilaþvær reykingamanninn til að finna hverja einustu mögulegu afsökun sem til er til þess að réttlæta reykingarnar. Sá sem reykir áttar sig ekki á alvarleika málsins fyrr en of seint. Hann áttar sig ekki á því að ákvörðunin sem hann tekur á hverjum degi, oft á dag, þegar hann kveikir sér í sígarettu er sennilega sú heimskasta sem hann framkvæmir og það sem meira er; hún verður heimskulegri því oftar sem hann framkvæmir hana. Ég, sem dæmi, afsakaði mig með því að viðurkenna fíkn mína og heimsku en að heimskan hefði verið framin í barndómi og þess vegna í algjörum dómgreindarskorti. Þessi hugsun er lýsandi fyrir heimsku reykingamanna sem eru þó á réttri leið og fá hrós fyrir það.

En svo er til annar hópur af reykingamönnum; þeir sem byrjuðu á fullorðinsárum. Ég veit ekki fyrir hvaða tilverknað á þessari jörð þessir einstaklingar byrjuðu að reykja en ég hef þó mína eigin hugmynd um það. Reykingum fylgir ákveðinn félagstaða sem sumum finnst eftrsótt og byrja þess vegna að sjálfir reykja. Sjálfum finnst mér þetta það heimskulegasta sem maður getur gert en enginn í þessu samfélagi, ekki einu sinni Þorgrímur Þráinsson sjálfur, hefur gert eitt né neitt til að fræða almenning um heimsku reykinga þannig hún skiljist. Allir einblína á heilsufarsleg vandamál og peningasóun. Þessir tveir þættir eru vissulega það sem reykingar gjöreyða en hverjum er ekki sama? Það er seinni tíma vandamál. Fólk hugsar sér að það geti alltaf hætt að reykja þegar það hefur ekki efni á því eða þegar heilsunni byrjar að hraka, að það eyði hvort eð er peningum í allskyns vitleysu, afhverju ekki sígarettur.

Það er því ljóst að reykingar heilaþvo ekki einungis reykingamennina sjálfa heldur samfélagið í heild. Enginn virðist átta sig á því að það að byrja að reykja er ekki bara krabbameinshætta og peningaeyðsla, það er fíkn. Það er í raun alveg jafn alvarlegt og nauðgun! Fullorðin maður, eða svo til, með góðe geðheilsu og sæmilega greind tekur ekki þá ákvörðuð að gerast nauðgari, að eyðileggja sitt eigið líf hægt og bítandi meðan aðrir þjást af þeirra sök. Samskonar maður tekur heldur ekki ákvörðun um að gerast mannræningi, morðingi, bankaræningi o.s.f.v. Mergur málsins er sá að fullorðinn maður með sæmilega greind og góða geðheilsu tekur ekki meðvitaða ákvörðun um að eyðileggja sitt eigið líf eða annarra.

Hver er þá munurinn á þeim sem glæpi fremja og þeim sem byrja að reykja á fullorðins árum?

Er þetta kanski viðhorf sem að samfélagið þarf að tileinka sér?

Spyr sá sem var fyrir fáeinum vikum talinn frekar harður reykingamaður, hræsnarinn sjálfur.

Eđlisfrćđivefur og rugl!Ingvar Óli Eymundsson

Ég man eftir því þegar ég var í grunnskóla, þegar ég var góður í stærðfræði og náttúrufræði og þess háttar viðbjóði. Mér fannst það meira að segja skemtilegt. Ég var alltaf að fá að heyra eitthverskonar bull um að ég væri svo klár og góður í stærðfræði og eðlisfræði o.s.f.v. en ég er búin að komast að sannleikanum varðandi þau efni. Ég er kanski klár og hugsanlega mjög góður i grunnskólastærðfræði og efnilegur í annari stærðfræði en ég mun aldrei verða góður í eðlisfræði. Kanski var samt eitthvað til í þessu. Ég skildi eðlisfræði mjög vel þegar ég var í grunnskóla. Núna fjórum árum seinna er ég að klára grunn áfangan í menntaskóla og ég skil ekki rassgat þó svo að þetta sé nánast sama efni og ég var að læra í grunnskóla. Það hlítur þess vegna að vera að gáfum mínum hafi hrakað, sem er slæmt. Með þessu áframhaldi verð ég fyrsti einstaklingurinn sem þróar Downs-heilkenni og er ég viss um að Félag Áhugamanna um Downs-heilkenni verði minna en mikið áhuga samir um mig.

Já þið lásuð rétt! Félag Áhugamanna um Downs-heilkenni er til!! Það er fátt í þessum heimi sem er rangara en það! Að vísu er þetta félag ætlað aðstandendum en nafnið gefur eitthvað allt annað til kynna. Eitthvað sem að ég ætla ekki að fara út í hér...

En yfir í annað. Á síðustu dögum hef ég vafrað um vefinn umtalsvert og fundið hina ýmsustu hluti. Einn af þessum hlutum er Napolion Dynamite soundbord!! Sem er algjör snilld, allavega fyrir þá sem að hafa séð þessa frábæru mynd. Soundbordið er einfaldlega þannig að maður fær fullt af setningum sem hann sagði í myndinni upp á skjáinn sem maður heyrir svo þegar maður smellir á þær. Annar hlutur er líka þessi vef útgáfa af Hvar er Valli . Hún virkar þannig að maður hefur ca. fimm mínútur til að finna Valla annars deyr hann, sem er mjög fyndið.

Farinn að læra fyrir uppeldisfræðipróf svo ég fái kanski einhvern tíma foræði yfir framtíðar barninu mínu.

You will find out what it is if you read it.Ingvar Óli Eymundsson

Ég er búinn að mynda mér þá skoðun að Páll Óskar sé ekki bara balldrotningin heldur kóngurinn líka! Hann spilaði á Sjallanum á Laugardagskvöldið en þar var ég einmitt mættur. Það er þannig að yfirleitt finnst mér hundleiðinlegt á böllum! En ég skemmti mér konunglega á þessu balli! Það er að vísu fátt annað að segja um það.

Ég verð samt núna að leiða áhyggjur mínar í ljós varðandi Harry Potter. Ég er nefnilega ekki frá því að æfintýrið um Potter sé það mikilfenglegasta sem nokkru sinni hefur verið skrifað. Áhyggjur mínar stafa helst af því að ekki verða gerðar fleiri bækur en sjö. Hvað þýðir þetta eiginlega? Deyr Harry í síðustu bókinni? Ég veit ekkert um það en það væri hræðilegt. Ef einhver hefur séð myndina Misery
þá deilir hann áhyggjum mínum alveg örugglega með mér. Sjálfur hef ég ekki lesið bækurnar en ég hef þó séð allar myndirnar, enda held ég að það henti mér betur sökum þess hversu hægt ég les. En Þessar myndir eiga þó sérstakan sess í hjarta mína sem og örruglega flestra sem hafa séð þær. Ekki endilega fyrir stórfengleika eða annarskonar gæði heldur vegna þess að þær koma draumaheimi í mynd. Draumaheimi sem að ég efast ekki um að margur hefur látið sér dreyma um í barnæsku. Að fá að vera galdrakarl með töfrasprota og þess háttar.
En vegna þess að þessi saga virðist snerta svo marga þykir mér það óviðeigandi að æfintýrið endi illa. Ég veit það líka að kínverjar virðast vera á sama máli og ég.. Allavega er búið að gefa út fjórtánbækur þar sumstaðar, sem að mér þykir eiginlega bara undrunarvert en samt eitthvað svo frábært. Það er þó nokkuð augljóst að það var ekki J K Rowling sem skrifaði allar þær bækur, ef hún skrifaði þá einhverja af þeim.


I am not quite sure why but it seems that the Icelandic letters have stopped working and there for I feel it is my duty to finish this article on English.

The great thing about Chinese people, now days, is that they seem to manage everything. You can see them everywhere as the most hardworking people in the world. No matter what they are getting paid their enthusiasm is by far the greatest. If they need something done, they do it. If they can’t decide whether they want a Mercedes Benz or a BMW they create a Mercedes BMW. If they want fourteen books about Harry Potter they write it. If they don’t want to free Tibet they don’t, although they should. Either that or go fuck them self’s. That’s my opinion.

I can see now that I have actually established more than one certainty in my text above. First of all I don’t want Harry Potter to die to have some psychotic lady kidnap J K Rowling and brake her legs. Secondly; the Chinese people are the most dedicated persons in the word. And last but not least; if the Chinese people do not free Tibet they should go fuck them self’s.

Munntóbak er gull í munnIngvar Óli Eymundsson

Í dag, þann 4.maí, er 11. reyklausi dagurinn minn í röð. Mér er eiginlega bara farið að líka mjög við það að vera reyklaus. Ég er búinn að spara allavega 5000 kall á því aðvera reyklaus í þennan stutta tíma. Auk þess líður mér mjög vel í lungunum og ég er ekki frá því að ég geti andað dýpra en ég gat sem reykingamaður. Allt gott og blessað með það. Áður en ég varpa fram mínu hefðbundna rugli vil ég benda lesendum á brandarahornið sem ég er búinn að gera starfshæft. Eins og gloggir lesendur hafa kanski tekið eftir er það efst, hægra meginn á síðunni. En svo ég komi mér nú að aðalatriði blogsins, sem að þessu sinni verður í einlægum og hissa nöldurtóni.

Kvikmyndir. Er til maður sem hatar kvikmyndir. Ég veit um fullt af fólki sem að hatar einstakar kvikmyndir en engan fyrirlítur þær sem eina heild. Þess vegna held ég að kvikmyndir séu ein af vænlegasta kostinum til að upplifa skemmtun, hvort sem að maður er einn eða með öðrum. Það finnst örugglega öllum gaman að fara í bío og það er sennilega þess vegna sem að fyrsta stefnumótið er svo oft bíoferð. Það er sennilega það eina sem getur ekki klikkað. Því ef myndin er slæm þá er hægt að eyða restinni af kvöldinu í að vera sammála um það. En hvað ef það eru til manneskjur sem að hata bíómyndir. Segjum sem svo að ég myndi bjóða einhverri stelpu í bíó og hún myndi svara mér : " Ég horfi ekki bíómyndir, hoppaðu upp í rassgatið á þér og taktu allar bíómyndir í heiminum með þér. Þetta er heimskuleg og röng afþreying, þó ekki sé að nefna hversu leiðinleg hún er o.s.f.v...."
Ég hef ávallt haldið því fram að svona einstaklingar væru ekki til. En svo, fyrir mjög stuttu síðan, sá ég, með eigin augum, nákvæmlega svona manneskju. Hugsanlega er þessi manneskja of kurteis til að segja manni að hoppa upp í rassgatið á sér en engu að síður sagði hún.. Já þetta er hún, en ekki hvað... Hún sagði að henni fyndust bíómyndir leiðinlegar og heimskulegar og að hún horfði ekki á þær. Hvernig á maður að svara þessu öðruvísi en með orðinu "ha" og meðfylgjandi upphrópunarmerkjum.
Ég er ekki alvitur maður en ég myndi halda að þetta væri afleiðing af röngu uppeldi. Það er eins og hún hafii verið læst inni og neydd til að horfa á kvikmyndir í vikur, ef ekki mánuði. Hugsalega gæti þetta líka stafað af því að foreldrar hennar hafi alveg fáránlega lélegan kvikmyndasmekk og þess vegna hafi hún aldrei fengið að sjá góða bíómynd og fylltist við það frodómum. Það er líka hugsanlegt að hún sé einfaldlega svo heimsk að hún þekki ekki góðar myndir frá slæmum, skilur ekki húmor, eða kannski hefur hún bara engan persónleika. Ég veit að margir fá hugmynd um hverskonar persónuleika manneskja hefur með því að miða við kvikmyndasmekk þeirra. Er það þá merki um ákveðinn persónuleika að hata bíómyndir í heild sinni eða er það merki um engan persónuleika??....
Ég veit það ekki en mér líkar það alls ekki.

Ţađ eru ađ koma próf!!!Ingvar Óli Eymundsson

Apríl er að klárast og það merkir aðeins tvennt fyrir mér. Í fyrsta lagi ; Ég verð tvítugur á sunnudaginn og í öðru lagi ; eru prófin að byrja. Og í tilefni af því að prófin eru að byrja langar mig að gefa nokkur dæmi sem menn geta fylgt ef þeir eiga í vandræðum, s.s. að vera að fara að falla í einhverju. Þannig er mál með vexti að ég rakst inná eldgamla bloggsíðu sem var í eigu minni og fann þar nokkuð skemmtilega grein um það hvernig maður getur fallið á prófi með stæl. Greinin var í þrjátíu atriðum en ég mun sennilega sleppa nokrum af þeim fyrir þær sakir að vera frekar léleg, atriði þ.e.a.s.
Ef þú, lesandi góður, ert með það alveg á hreinu að þú sért að fara að falla í einhverjum áfanga og vilt gera það eftirminnilega þá gætir þú notast við einhvað af hugmyndum sem hér munu koma :

1: Taktu með þér kodda í prófið og sofðu. Ef einhver reynir að vekja þig þá ferðu að hrjóta. Ef einhver snertir þig þá ferðu að tala uppúr svefni o.s.f.v. Ef farið er rétt að þessu gæti þetta verið meinfyndið!

2: Ef um er að ræða stærðfræðipróf, eða annað sambærilegt, svaraðu þá í löngum setningum með flóknum orðum. Ef um venjuleg próf er að ræða svaraðu þá með stærðfræðiformúlum og tölum.

3: Sestu niður taktu prófið og gerðu skutlu úr því. Fleygðu því í kennarann.

4: Talaðu alla leið í gegnum prófið. Lestu spurningarnar upphátt og farðu svo aðrífast við sjálfan þig um hvað rétta svarið sé. Ef þú ert beðinn um að hætta segðu :" já, einmitt, þú lest hugsanir". Talaðu svo um hvað kennarinn sé mikið fífl.

5: Eftir ca. fimm mínútur af prófinu skaltu kalla á kennarann :" hvað er þetta eiginlega? ég er búinn að mæta í hvern einasta tíma á þessari önn og ég skil ekki rassgat í þessu! Og hver ert þú eiginlega?

6: Eftir ca. fimm mínútur af prófinu skaltu standa upp, rífa prófið í tætlur, henda því svo upp í loft um leið og þú öskrar eitthvað mjög heimskulegt. Sestu svo niður og óskaðu eftir nýju prófi því þú hafir týnt hinu.

7: Svaraðu prófinu á öðru tungumáli. Ef þú kannt ekki annað tungumál skaltu skapa þitt eigið.

8: Um leið og kennarinn lætur þig hafa prófið skaltu éta það og láta eins og ekkert sé eðlilegra.

9: Fáðu prófið og lestu í gegnum það. Vertu hugsi í smá stund. Stattu svo upp með látum og hentu prófinu í borðið og öskraðu :"TIL ANDKOTANS MEÐ ÞETTA PRÓF" bættu svo við " á hvað ert þú að horfa" og þrammaðu hetjulega út.

10: Mættu ofurölfi í prófið og skemmtu þér vel.

11: Eyddu próftímanum í að reyna að fá sessunaut þinn í að gera bylgju.

Ég mæli ekki með neinu af þessu, nema auðvita ef þu ert þegar fallin/n þegar þu ferð í prófið. En svo er jú alltaf hægt að vera frumlegur og notast við sín eigin bellibrögð. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef aðeins prófað eitt af ofangreindum atriðum, nr. 7. Að vísu var það óvart en það heyrir sögunni ekki til.

Þangað til næst... Kv. Ingvahrino Ólíoddo Eyímúndsssoún

PrufubloggIngvar Óli Eymundsson

Mér finnst það með eindæmum skrítið að vera að blogga í nýju kerfi en um leið mikill léttir. Ég var kominn með mjög mikla leið á blogcentral kerfinu. Mér finnst það bæði ljótt og leiðinlegt kerfi. Ekki að það skipt máli því að þetta blog er einungis skrifað til þess að sjá hvernig það lítur út í nýja kerfinu.

Auglýsing

Brandari..?

Jói : Kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó?
Andri : Ertu ađ grínast? Jahá hvađ ţađ kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó!!
Jói : Líka í pissuskálar?
Andri : Ébsí pepsi
Jói : Ertu hand viss?
Andri : Hland piss

Teljari

Innskráningar kubbur