Ađalvalmynd

Klukkan

Leit

félagar og kunningjar

Tónlist / Gítar

Skrítin vika...Ingvar Óli Eymundsson

Jæja, þá er ný vika gengin í garð og þess vegna um að gera að ryfja upp atburði þeirrar síðustu...  Ég var eiginlega frekar slappur fyrri hluta vikunar, af óþekktum ástæðum.. Fjörið byrjaði þó á Miðvikudaginn þegar ég reif mig upp eldsnemma morguns til að reyna að fá fluginu mínu suður breytt.. Það gekk ekki eftir og endaði ég þessvegna með því að hanga inná Akureyri í fjóra tíma að bíða eftir flugi. Ég sat þar á Café Karólínu sem, er nú bara nokkuð snoturt kaffihús og hér eftir eitt af mínum uppáhalds. Það gerðist þó lítið spennandi þar annað en að einhver sæt stelpa spurði mig hvað klukkan var, á meðan ég og mína ofsaflughræðsla vorum að lesa saman blaðið og þar var auðvita ekkert nema fréttir um flugslys og þess háttar sem var alveg frábært, og ég svaraði "tíu mínútur yfir tóf".. Þegar ég hugsa til baka þá er svo margt sem ég hefði auðvita átt að segja.. Einsog t.d. "hún fer að detta í það að ég og þú förum saman á klósettið, ef þú veist hvað ég á við".. En ég sagði bara "tíu mínútur yfir tólf"... Síðan sá ég hana ekkert meir... þann dag..
Svo á fimmtudeginum, þegar ég var kominn í bæinn, var ég í kringlunni að fá mér subway og þá sé ég hana vera að fá sér McDonalds.. Ég ákvað að vera nagli og gekk til hennar og spurði hvað klukkan var og hún svaraði : "gleymdiru klukkunni þinni á Akureyri?", og ég játaði því. Svo sagði hún : "ok.. hún er korter í þrjú". Og þannig lauk því..  Frekar aumkunarvert.. Ég veit.. en hvað um það...
Á föstudaginn þurfti ég en og aftur að fara snemma á fætur til að fara á æfingu fyrir söngvakeppnina. Sú æfing gekk svo hræðilega að ég brást næstum því í grát á eftir.. En svo um kvöldið var æft á sviði og þar gekk mér ágætlega svo ég gat sofið rólega..
Laugardagurinn var svo sennilega allra daga skrautlegastur. Ég vaknaði, AFTUR, eldsnemma. Ég var svo mætur í Mýrina klukkan níu í generalprufu, sem var svo frestað því að rafmagnið fór af. Svo gekk þetta nokkuð slysalaust fyrir sig alveg þangað til að í útsendingu en þá þurfti hljóðkerfið endilega að klikka um leið og ég byrjaði að syngja. Ég var samt sennilega sá eini sem að tók almennilega eftir því svo það er í lagi... Mér gekk samt frekar illa að syngja og var greinilega ekki vinsæll meðal dómarana og komst ekki áfram í úrslita keppnina. Það var þó í góðu lagi því ég fór, vitaskuld, bara að djamma í staðinn. Ég heyrði þó  að Greta Mjöll hefði hampað öðru sætinu og ég samgleðst henni yfir því.
Ég vaknaði svo í dag með dúndrandi hausverk og allan pakkan í dag. Þar sem að ég hafði ekkert að gera í þynnkunni þá ákvað ég barasta að blogga nokkuð duglega..

P.s. Ég er að reyna að finna mér svona kveðju frasa fyrir bloggið mitt... Margar hugmyndir í gangi svo ég ætla bara að skiptast á þangað til að eitthvað fer að skera sig útúr sem besti kosturinn....

kv. Ingvar, maðurinn sem þorir í "one on one við Chuck Norris"

Hvađ er ađ ske??Ingvar Óli Eymundsson

Hlutirnir komnir í gang sýnist mér. Það er eitthvað byrjað að virka hérna.. Þetta er kerfi er svo nýtt að það er allt frekar takmarkað í augnablikinu.... en mér tókst þó allavega að setja in tengla.

En á öðrum nótum.... Ég var að lesa fyrsta bloggið hans Óla.. Það er spes.. Ekki fyrir viðkvæmar sálir.. En ég mæli samt með að það sé tékkað á því.. En hvernig sem því líður þá er ég kominn í bæinn. Ég verð í rúmar tvær vikur hérna í siðmenningunni..... AARG!! Verð að hætta.............

PrufubloggIngvar Óli Eymundsson

Mér finnst það með eindæmum skrítið að vera að blogga í nýju kerfi en um leið mikill léttir. Ég var kominn með mjög mikla leið á blogcentral kerfinu. Mér finnst það bæði ljótt og leiðinlegt kerfi. Ekki að það skipt máli því að þetta blog er einungis skrifað til þess að sjá hvernig það lítur út í nýja kerfinu.
Síđa 3 af 3

Auglýsing

Brandari..?

Jói : Kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó?
Andri : Ertu ađ grínast? Jahá hvađ ţađ kostar ađ fara á klóstiđ í Mónakó!!
Jói : Líka í pissuskálar?
Andri : Ébsí pepsi
Jói : Ertu hand viss?
Andri : Hland piss

Teljari

Innskráningar kubbur